|
Könnun
Átt þú hund??
Já :)
13 atkvæði
Nei :(
1 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 14
|
08.04.2009 10:45:56 / aldo-cavalli
»
06.04.2009 17:52:40 / aldo-cavalli
Já góðan daginn Aldo Cavalli er orðin eins árs, er ekki alveg að trúa því að það sé komið ár síðan ég starði á síman og gat ekki hugsað um neitt annað í afmælisveislunni hans Gísla fyrir ári síðan! En jú takk fyrir prinsinn orðin eins árs  Að sjálfsögðu var nú haldin veisla fyrir öll fínu Affietude börnin og gerðum við það á laugardaginn. Við hittumst öll hérna í Svartsengi og fengu þau að hlaupa og leika sér, og þótti ekki leiðinlegt! Svo fórum við öll upp í húsið okkar Gunnars með tjaldborð og stóla og allir komu með einhverjar kræsingar á hlaðborðið okkar, namm það var svoo gott, en auðvitað mátti ekki gleyma afmælisbörnunum sjálfum og Sáu Birna og Calum um að koma með köku handa þeim, og það var skoh lifra og hjartarkaka af bestu gerð! Þetta þótti nú Aldo geðveikt!! En hérna eru nokkarar myndir af prinsinum.  Fyrsta heimsóknin, 3. vikna  Daginn sem við völdum hann  7. mánaða  Afmælisbörnin 6. apríl  Aldo 1. árs og Gísli 15. ára  og afmæliskakan sem Gunnar gerði fyrir strákana sína
»
28.03.2009 14:49:31 / aldo-cavalli
»
10.03.2009 23:17:30 / aldo-cavalli
Jæja er ekki kominn tími til að maður setji eitthvað nýtt hérna inn á. Það er bara allt gott að frétta af okkur, það gekk ofsalega vel í sprautunum hjá Aldo og er hann byrjaður á fullu í sundi og fer 2X í viku núna og lausahlaup á milli. Svo fór hann auðvitað á sína fyrstu sýningu núna í byrjun mars, það gekk nú bara fram úr öllum vonum. Hann keppti við bræður sína Safír og Valiant, en sýndi sig nú bara alls ekki vel, vildi ekki hlaupa í taumnum og svona  Ennn fékk exelent 3. sæti og meistaraefni  Allir hvolparnir undan Chelsea prinsessu fengu Exelent og meistaraefni og óska ég Auju innilega til hamingju með það sem kláraði einnig Alþjóðlega meistaratitilinn þennan dag, og var með annan besta ræktunarhóp, sem saman stóð af Safír, Valiant, Aldo, kiöru og Dívu. Geðveikt!!  En ekki nóg með það þá sýndi ég Erró minn og Línu á laugardeginum. Erró varð BOS með íslenskt og alþjóðlegt meistarastig!  Og Lína varð 2. besta tík aðeins 1 árs gömul með meistaraefni og vara-cacib. Hérna eru nokkrar myndir.  Chelsea með börnunum, Safír, Aldo, Valiant, Kiara og Díva    Pheobe og Erró flottastur 
»
16.01.2009 10:45:17 / aldo-cavalli
Ég fór með Aldo í endurkomu í dag vegna slyssins. Það átti að endurmeta stöðuna og sjá hvernig batinn væri. Við fengum því miður ekki nógu góðar fréttir. Vöðvinn er í sjálfu sér allt í lagi en stækkar ekki. Henni finnst hann ekki þroskast nóg í öllum vöðvum og telur hún að það sé vegna þess að hann slasaðist á uppbyggingartímabilinu. Það var ákveðið að setja hann á svokallaða cartrophen meðferð sem eru 4 sprautur, ein í viku í fjórar vikur. Þetta á meðal annars að víkka æðarnar og koma jafnvægi á liðvökvaframleiðslu í líkamanum. En á þriðju viku í meðferðinni þá mun honum slá niður og fá verki í alla vöðva líkamans og verður þarf af leiðandi haltur aftur. Maður er eiginlega bara í hálfgerðu sjokki ennþá, hefði aldrei grunað að svona færi en vona bara að þessi meðferð hjálpi honum eitthvað. En er einhver sem veit um einhvern sem hefur farið í svona meðferð? Og hvernig var batinn?? Núna er bara að bíða og sjá hvernig þetta allt saman fer.
»
06.01.2009 18:25:58 / aldo-cavalli
Já þá eru fyrstu jólin og áramótin búin hjá prinsinum. Allt gekk rosalega vel og var hann bara stilltur, fannst jólatréð ofsalega fallegt og horfði aðdáenda augum þegar við fjölskyldan vorum að skreyta það. Á þorláksmessu fóru auðvitað allir gaurarnir í jólabaðið alveg svakalega fínir og tilbúinir í jólafötin. Aldo var í rauðri satínslaufu, algjör töffari! Svo komu áramótin, Aldo var nú svona nokkuð sama, farin að venjast þessu öllu saman. Fór meira að segja með okkur á flugeldasýninguna og fannst ÆÐI! En svo þegar klukkan sló 12 þá var honum ekki alveg sama, fannst allt of mikil læti! En fór bara að sofa  En það er bara allt gott að frétta af hundum og fólki, Apollo er bara búin að vera nokkuð góður, byrjaður að leika sér aftur  Við Erró erum svo að fara að byrja að undirbúa okkur fyrir sýninguna, koma okkur báðum í betra form  Fyrsta afghangangann var milli jóla og nýárs. Ég, Gunnar og Aldo, Auja, díva og Chelsea, Ásta og Diesel, Vala, ómar og Thor, Birna og Valiant mættum öll! Bara æðislegt. Og svo kom stefanía og Safír og hittu okkur eftir á. bara æðislegt að hittast svona! Þurfum að gera þetta oftar á nýju ári! En hér eru nokkrar myndir af flottasta gaurnum!   
»
26.12.2008 10:54:33 / aldo-cavalli
»
20.11.2008 14:56:21 / aldo-cavalli
já takk fyrir var að fá að vita að Erró er 6. stigahæsti hundur Íslands! Ég er ekkert smá stolt að dúllunni enda bara sýndur á tveimur sýningum á þessu ári. En svo eru auðvitað vondar fréttir líka, en hrakfallabálkurinn minn hann Aldo þurfti að meiða sig einu sinni enn. Hann braut hliðarnöglina af þannig að það var bara kvikan, jesús þvílíkt blóð!, ekki geðslegt. En þá var brunað með hann inn í Garðabæ og hann svæfður einu sinni enn. Krukkað eitthvað og skorið og sett umbúðir. Honum er nú alveg sama um þetta umbúðar rusl enda orðin þaul vanur þessi elska. En svo er bara verið að verkjapillum, sýklalyfjum og bera krem tvisvar á dag. En annars er bara allt gott að frétta, húsið gengur eitthvað hægt þessa dagana en það er líka bara allt í lagi, erum ekkert að drífa okkur. En það styttist alltaf í að ég og Gunnar förum til London, get ekki beðið eftir að vera í heila 4 daga með honum! Það hefur ekki gerst leengi!
»
07.11.2008 21:52:19 / aldo-cavalli
Já maður er eitthvað búin að vera latur að blogga upp á síðkastið! Það er bara allt gott að frétta af Aldo mínum, hann er orðin rosalega duglegur og erum við farið að geta farið í 20 mín göngu  Fórum meira að segja í Laugavegsgöngu HRFÍ og það var bara ÆÐI! Aldo var svoo duglegur, fannst þetta brjálað fjör, allt þetta fólk og hundar bara frábært  Ég og Aldo, Díva og Auja, Birna og Valiant, Stefanie og Safír löbbuðum öll saman, bara æðislegt. En húsið okkar gengur bara rosalega vel í Kreppunni  verið að setja þakið á núna. Á næsta ári verða endalausir hundahittingar í Grindavíkinni  En ég er búin að opna litla hundasnyrtistofu hérna í bílskúrnum, rosa kósí. Það gengur bara nokkuð vel, mun betur en ég bjóst við! Allir roosalega sáttir. En ég setti inn nýjar myndir í albúmið Nóvember 08. Endilega kíkið á unglinginn minn  Kveðja Íris og voffarnir
»
29.09.2008 23:46:43 / aldo-cavalli
Gvuuð maður er ennþá bara svífandi á einhverju bleiku vinningsskýji hérna! Ég er skoh stoltasta mamman í öllum heiminum núna! Ég var nú alveg að rifna úr monti þegar Erró minn vann 37 papillon hunda og Fékk Íslensk og Alþjóðlegt meistarastig!!! Fór svo í grúbbu að keppa við alla þessa fallegu smáhunda, svo þegar dómarinn var búin að skoða þá alla þá tók ég allt í einu eftir því að það voru bara ég og þrír aðrir inní í hringnum, ég bara " Gvvuð ég er að fara að fá sæti í grúbbu" En svo kom 4. sæti og 3. sæti og ekki var búin að kalla á okkur, þá vorum bara ég og Auja eftir með Tíbrá. Og í fyrsta sæti er PAPILLON! Gvvuuð ég trúði þessu ekki ég var að vinnna grúbbu 9!  Og það var ekki nóg með það. Svo fórum við og greiddum yfir prinsinn og gerðum hann fínan og fórum í Best in Show, þarna voru komnir 10 fallegustu hundarnir sama komnir og Erró minn einn af þeim! Þetta var þvílík upplifun, allt gekk rosalega vel, Magnea Sandra Anna Rán Gunnar og Hreinsi og Mamma stóðu sig eins og hetjur í klappliðinu. En svo var búið að skoða alla og allir sendir út úr hringnum, en svo var byrjar 4. og 3. sæti og þá var ég nú alveg viss um að ég fengi ekki sæti. En eruð þið að trúa þessu í öðru sæti í Besti hundur sýningar var Erró minn!!! Royal Ice Ekvador. Váá ég ætlaði nú varla að trúa þessu og fór auðvitað að hágrenja þegar ég fór inn í hringinn stoltasta mamma í heimi  Svo tóku bara við myndatökur út í eitt og allir að óska manni til hamingju, jii hvað allir voru yndislegir! En Gvvuuð ég og Erró dóum þegar við komum heim, beint upp í rúm að sofa!!! Og sváfum leeenngi! En takk allir fyrir æðislega sýningarhelgi og óska ég öllum innilega til hamingju með úrslitiln! Helling af myndum í Myndaalbúminu   
»
27.08.2008 17:30:07 / aldo-cavalli
Í gær fórum við í endurskoðun átti að fara að taka nýjar myndir og svona. Þetta byrjaði nú alls ekki vel, þegar dýralæknirinn( Hanna sem sér um hann) tók umbúðirnar sem annar dýralæknir hafði sett á hann á laugardaginn af. Þá kom bara í ljós þessi hrikalegu sár og fóturinn var allur stokkbólginn, Liðurinn virkaði ekki, og allt var þetta vegna þess að hann var vitlaust vafinn!!!! Ég var svo reið og sár að þið trúið því ekki, það er ekki skrítið að þetta grey sé búin að væla og varla geta sofið síðan hann fékk þessar umbúðir, litli engillinn!! Hanna hljóp bara strax og náði í deyfilyfið og gaf honum, hann kvaldist svo óheyrilega greyið. Gvuuð það er hrikalegt að sjá litla drenginn svona kvalinn maður fær bara hálfgert áfall. En það þurftu að setja hann í heitt bað og nudda upp allan fótinn til þess að reyna að fá blóðflæðið á stað og koma liðnum í lag, svo tók bara við krem meðferð í 2klst á sárin hans. Það voru líka teknar nýjar myndir,en ekki mikið að frétta. Henni fannst reynar vöðvinn ekki alveg eins illa farinn, en hann er samt ekki byrjaður að gróa. Aldo er núna bara í fullu fjöri og svo ánægður með að vera búin að losna við vondu umbúðirnar og fá bara þessar venjulegu, þó svo að það sé nú ekkert gaman að brösla um á þremur fótum. En þessi elska er samt mjög duglegur, er alveg farin að kunna að standa upp og leggjast og svona ýmislegt, svo klár  En næsta miðvikudag verða aftur teknar myndir og þá verður ákveðið hvort það þurfi að setja hann í aðgerð, Núna verður bara að krossa putta! Kveðja Íris og Aldo
»
25.08.2008 15:49:38 / aldo-cavalli
Já ég hef mjög slæmar fréttir. Ég og Gísli fórum í papillongrillið í heiðmörk á miðvikudaginn með Apollo, Erró og Aldo Cavalli. Við vorum bara búin að vera í smá tíma þegar nokkrir papillonar ákváðu að Aldo væri alls ekki flottur og byrjuðu að gelta og urra all svakalega á hann, litli engillinn minn varð svo hræddur að hann hljóp í burtu. Svo heyri ég bara þessi svakalegu öskur, gvvuuð ég vissi ekki hvað var að gerast, hljóp á harðarspretti á eftir Aldo mínum og þar stóð hann eins og ræfill. Vinstri framfóturinn úr lið og sársaukinn og öskrin, jesús minn. Kristín Halla hringdi beint í mömmu úr bílasímanum afþví að það var ekkert símasamband og mamma beint í Hönnu dýralækni. Svo var bara brunað af stað á spítalann. Þegar við komum var hann aðeins skoðaður og svo bara svæfður um leið vegna kvala. En hann hafði dottið í lið í bílun og þá þurfti ekki að gera það. Það voru teknar röntgenmyndir og kom í ljós að hann er rifinn tvíhöfða og ónýtan liðpoka þessi elska. Núna er hann bara spelkaður upp og á mjög sterkum verkjalyfjum. Hann má ekki hreyfa sig neitt og pissar bara undir. Úff þetta tekur mjög á að sjá litla engilinn min svona kvalin og lasin  En núna er ég bara í því að reyna að fá svör úti í þessum stóra heimi hvað best sé að gera. Enginn dýralæknir hérna á litla íslandi hefur fengið svona tilfelli og þess vegna er þetta svona erfitt. En við förum aftur á morgun og þá verða teknar nýjar myndir og athugað hver staðan er þá. Allir eru búnir að vera æðislegir!! Núna sér maður hverjir eru sannir vinir og vil ég bara þakka öllum sem eru búnir að styðja mig. Læt ykkur svo vita hvernig fer á morgun. Kveðja Íris og Sjúklingurinn 
»
18.08.2008 14:19:52 / aldo-cavalli
já ég er nú ekki alveg að standa mig í þessu bloggeríi. Ég er ekki alveg að trúa því að sumarið sé bara búið!  Þetta er búið að vera æðislegt sumar þó svo að margt erfitt hafi komið upp á. Yndislegt veður og maður er bara búin að vera úti að dúllast í hundunum. En auðvitað var nú toppurinn á tilverunni að fá Aldo í hendurnar  Við fórum samt bara einu sinni upp í sumarbústað í sumar sem mér finnst alveg hrikalega sorglegt, en það er bara brjálað að gera þegar það er verið að byggja heilt hús og hvað þá 5 stykki, þannig að það er ekki skrítið þó að Gunnar minn hafi ekki komist oftar, vonandi förum við bara oft næsta sumar þegar húsið verður tilbúið  En núna er Aldo að byrja í hvolpaskóla og er fyrsti tíminn í kvöld, þarna verða 4 af systkynum hans sem verður bara æðislegt  Ætla að setja inn nokkrar myndir síðan í sumar  Sumarkveðja Íris og Aldo Cavalli  Apollo litli engill.
»
29.07.2008 13:26:06 / aldo-cavalli
Já það er skoh nóg að gera hjá okkur þessa dagana!! Gunnar alltaf að vinna í ORF og svo að byggja fína húsið okkar, hann er skoh duglegastur þessi elska! Mjóhundagrillið sem var bara æði! Hittumst uppí svartsengi, grilluðum góðan mat, spjölluðum mikið og hundarnir skemmtu sér konunglega. æðislegt að sjá hvað margir mættu. Aldo hitti systkini sín Dívu, Safír og Valiant. Aldo og Safír voru skoh bestu vinir og léku sér allan tíman! Hann var nú líka mjög glaður að hitta Kríu líf uppáhaldsfrænku sína  En ég er svo stolt af honum hann er svo glaður og opinn að það hálfa væri nú alveg hellingur! En svo fórum við í brúðkaup á laugardaginn og Aldo fékk að vera í pössun hjá Bjarklindi frænku, hún bjargaði okkur skoh alveg! Vildi ekki hafa hann einan heima svona lengi. En þar heillaði hann sko alla upp úr skónum eins og vanalega og var ekkert á leiðinni heim. Bara æðislegt  En núna er bara byrjað að sýningarþjálfa á fullu fyrir næstu sýningu. Það var hvolpahittingur seinasta þriðjudag og þá röltum við um miðbæ Reykjavíkur og tókum smá sýningarþjáfun. Allir hvolparnir stóðu sig eins og hetjur og vorum við eins og stoltir foreldrar  En læt fylgja myndir sem lísir Aldo bara í einu og öllu held ég hehe   " Ég var sko ekki að naga blómin"  Alltaf verið að leika sér  Ég er samt svooo góður drengur
»
Síður: 1 2 3
|
Heimsóknir
Í dag: 6 Alls: 19178
Könnun
Hvaða litur er fallegastur á Afghan?
Cream
0 atkvæði
Black and Tan
2 atkvæði
Golden black masked
1 atkvæði
Brindle
1 atkvæði
Domino
0 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 4
Dagatal
| janúar - 2012 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | | 29 | 30 | 31 | | Fyrri | Næsti |
|